Umhirða íslensku hænsnanna

Best er að fóðra íslensku hænurnar þannig að fuglarnir eru látnir éta upp - helst daglega - minnkið gjöfin ef ekki er étið upp - en aukið við skammtinn ef allt er uppurið úr döllunum þegar kemur að gjafatíma. Auk varpköggla er gott að gefa dálítið korn á gólfið (eða úti að sumarlagi) 10 - 20 gr. á fugl af hveitikorni, byggi eða maískurli (helst hveitikorni) eða blöndu af þessum tegundum. Á gólfinu þurfa að vera þurrir spænir eða sag. Grófur sandur þarf alltaf að vera til staðar aðgengilegur fyrir fuglana. Einnig er gott að þeir hafi aðgang að skeljasandi. Hreint vatn þarf vitanlega alltaf að vera til staðar í húsinu bæði sumar og vetur.

Húsnæðið sem hænurnar eru í þarf að vera þurrt og laust við dragsúg og hæfilega bjart ekki samt of bjart því það eykur hættuna á fiðurplokki. Þó að hænurnar þoli kulda vel er betra að húsið sé sæmilega hlýtt eða að minnsta kosti frostfrítt.

Útungunarhvötin er mjög sterk í íslenska stofninum þannig að það eru stanslaust yfir varptímann hænur sem vilja liggja á. Þessar hænur þarf að taka strax og þær byrja áleguna í varpkössunum og setja í rimlakassa þar sem þær eru hafðar í svo sem 2 sólarhringa, en eftir þann tíma ættu þær að vera hættar álegunni, í bili a.m.k. Eftir þessa meðferð fara þær að verpa fljótlega aftur þannig að afurðatapið verður ekki verulegt. Passa verður að hafa bæði vatn og fóður aðgengilegt í kassanum þennan tíma.

Ljós er ekki nauðsynlegt að hafa hjá hænsnunum nema til að halda þeim í varpi yfir skammdegistímann. Ef ekkert ljós er notað stöðvast varpið í sept. okt. og byrjar ekki aftur fyrr en í febrúar eða mars . Ef ljós er notað ætti lýsingin að vera frekar dauf og ljósið ætti ekki að loga yfir nóttina.


Til baka